Hlöðver Guðnason, PGA golfkennari og meðlimur í GKG verður með námskeið í Kórnum sem hefjast 15. febrúar.
Annars vegar eru hópnámskeið þar sem hámark 5 manns eru í hópi og lögð er áhersla á markvissa kennslu. Hins vegar æfinganámskeið (stöðvaþjálfun) þar sem fjöldinn er 8 manns og áhersla á góðar æfingar.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem eru í boði, en skráningarupplýsingar má sjá hér fyrir neðan. Námskeiðin eru blönduð kk og kvk:
Námskeið mið 15.2 – 22.2- 1.3 – 8.3 – fjögur skipti (sveifla og stutta spil) kr. 12.500
Námskeið fim 16.2 – 23.2- 2.3 – 9.3 – fjögur skipti (sveifla og stutta spil) kr. 12.500
Kl. kl 18-19 eða 19-20
Á námskeiðunum er lögð áhersla á grunnatriðin og góðar æfingar fyrir hvern hluta leiksins. Þar sem hópastærð er takmörkuð við fimm manns þá fær hver og einn persónulega nálgun.
Minnum á að hægt er að koma inn á æfinganámskeiðin sem eru í gangi. Það eru 6 skipti eftir 6.2 – 13.2 – 27.2 – 6.3 – 13.3 – 20.3 – sex skipti kr. 9.000
Kl. 18-19. Markmið æfinganámskeiðanna er fyrst og fremst að fá leiðbeiningar við að æfa vel og skipulega, heldur en beina kennslu.
Námskeiðin fara fram í æfingaaðstöðu GKG í Kórnum.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður, hægt er skrá sig með því að fylla út eftirfarandi upplýsingar og senda á ulfar@gkg.is
Skráning á námskeið á …. kl.
Nafn:
Kt.:
Netfang:
GSM:
Forgjöf:
Fyrir kylfinga sem óska eftir einka/parakennslu bendum við á kennara okkar Sigurpál Geir Sveinsson. Best að hafa samband við hann beint upp á tímapantanir, sigurpall@gkg.is eða 8620118.
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
8629204
