Nú styttist óðum í golfsumarið!

Við vorum að taka inn nýjar vörur í verslunina okkar. Ný lína af Ecco skóm í meira úrvali en áður og nú á enn lægra verði!

Ecco kynnti til leiks nýja týpu af tökkum undir golfskó fyrr á þessu ári, svokallað “SpiderGrip”. Um er að ræða takka sem svipa til götu golfskóna en með harðari botni sem veitir meira grip. Einnig eru komnar BOA reimar í ákveðnar týpur af Ecco skónum. 

 

 
Komin er ný lína af glæsilegum ZO-ON fatnaði. Vinsælu buxurnar halda áfram hjá okkur og nú bætast við nýjir bolir og jakkar. Jakkarnir eru blanda af Primaloft og Superstrech. Þeir eru því einstaklega léttir og hlýir og henta því íslenska golfsumrinu mjög vel.

Við erum einnig með grip í miklu úrvali! Grip frá Lamkin, Golf Pride, Pure Grips, Rosemark, Superstroke og Garsen. 

Endilega kíkið við, skoðið úrvalið og gerið góð kaup! 
Félagsmenn munið 15% afsláttinn.