Nú er rétti tíminn til að huga að kylfunum fyrir vorið sem er á næsta leiti.

Við erum komin með flotta aðstöðu til að skipta um grip og gera við kylfur í íþróttamiðstöðinni þar sem við bjóðum upp á flestar viðgerðir á golfkylfum. Við breytum legu og fláa, styttum, lengjum, þyngjum og fleira.

Verð fyrir vinnu:

  • Skipta um grip: 500 kr.
  • Lengja kylfu: 2.000 kr.
  • Stytta kylfu: 1.000 kr. 
  • Breyta legu: 1.000 kr.
  • Breyta fláa: 1.000 kr.
  • Þyngja kylfu: 1.000 kr.
  • Skipta um skaft: 2.500 kr.

Við bjóðum einnig upp á kylfumælingu þar sem Haukur Már Ólafsson, PGA golfkennari mælir höggin þín í Trackman greiningartæki, svo betur sé hægt að klæðskerasauma eftir þínum þörfum.

Við mælum:

  • Kylfuhraða
  • Legu kylfu í höggstöðu
  • Hversu langar kylfur henta þér
  • Hversu þungar kylfur henta þér
  • Hversu þykkt grip hentar þér

 

Verð fyrir mælingar:

  • Mæling fyrir dræver: 6.500 kr.
  • Mæling fyrir járnasett: 6.500 kr.
  • Mæling fyrir trékylfur: 6.500 kr.
  • Mæling fyrir fleygjárn: 5.000 kr.
  • Mæling fyrir pútter: 4.500 kr.
  • Mæla fyrir allt: 20.000 kr.
  • Veldu tvennt: 11.000 kr.

Pantanir: haukur@gkg.is

Grip
Við bjóðum uppá margar tegundir gripa á kylfur og púttergripa. Mikið úrval frá Golf Pride, Lamkin, Pure Grips, Superstroke, Rosemark o.fl. Við getum einnig sérpantað ýmis grip og skiptum um grip á innan við tveimur sólarhringum. Ásett grip á járn frá 1.200 kr og ásett púttergrip frá 2.500 kr.

Kíkið við í verslun okkar og skoðið úrvalið. Félagsmenn GKG fá 15% afslátt af öllum gripum líkt og öðrum vörum í verslun okkar.