Nú styttist í að nýliðanámskeiðin hefjist og eru þau ætluð ætluð nýjum félögum sem eru að stíga fyrstu skrefin í golfinu og hafa ekki fengið forgjöf. Nýjir félagar sem koma úr öðrum klúbbum og hafa fengið forgjöf eða áður tekið þátt á nýliðanámskeiði á vegum golfklúbbs, þurfa ekki að taka námskeiðið. Gjald per þátttakanda er kr. 6.000 og er innifalið í því tæknikennsla, spilkennsla og reglufræðsla samkvæmt neðangreindu skipulagi, auk námskeiðsgagna.
Eftirfarandi dagssetningar eru í boði, og er hámarksfjöldi á hverju námskeiði 16 manns.
Hópur 1 | Dags. | Tími | Mæting | Kennarar |
Sveifla og stutta spil | 11.maí | 17 – 19 | GKG skáli | Úlfar og Haraldur |
Spilkennsla | 13.maí | 17 – 18:30 | GKG skáli | Úlfar og Derrick |
Reglufundur | 19.maí | 20 – 22 | GKG skáli | Kjartan |
Hópur 2 | Dags. | Tími | Mæting | Kennarar |
Sveifla og stutta spil | 18.maí | 17 – 19 | GKG skáli | Úlfar og Haraldur |
Reglufundur | 19.maí | 20 – 22 | GKG skáli | Kjartan |
Spilkennsla | 20.maí | 17 – 18:30 | GKG skáli | Úlfar og Derrick |
Hópur 3 | Dags. | Tími | Mæting | Kennarar |
Sveifla og stutta spil | 8.júní | 17 – 19 | GKG skáli | Derrick og Haraldur |
Reglufundur | 9.júní | 20 – 22 | GKG skáli | Kjartan |
Spilkennsla | 10.júní | 17 – 18:30 | GKG skáli | Derrick og Haraldur |
Þjálfarar klúbbsins, Úlfar Jónsson, Derrick Moore og Haraldur Þórðarson sjá um námskeiðin. Kjartan Bjarnason, Yfirdómari GKG og Landsdómari sér um regluhluta námskeiðsins.
Skráning fer fram á heimasíðu GKG, undir flipanum Nýliðar, en hægt er að skrá sig með því að senda póst á netfangið ulfar@gkg.is eða með því að hafa samband við skrifstofu GKG 565 7037, gkg@gkg.is eða Úlfar Jónsson S: 862 9204, ulfar@gkg.is.