Óðinn Þór Ríkharðsson, hélt utan í dag til keppni á European Young Masters mótinu, sem haldið verður á Hamburger Golf Club, eða Falkenstein eins og hann er oftast kallaður. Mótið hefst á fimmtudag og lýkur á laugardag. Um er að ræða gríðarlega sterkt mót, en fremstu kylfingar Evrópu 16 ára og yngri taka þátt. Tveir piltar og tvær stúlkur leika fyrir hverja þjóð, en auk Óðins leika fyrir Ísland þau Gísli Sveinbergsson úr Keili, Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR, og Birta Dís Jónsdóttir úr GHD. Í fyrra kepptu þrír kylfingar frá GKG, þau Gunnhildur Kristjánsdóttir, Aron Snær Júlíusson og Egill Ragnar Gunnarsson.

Gaman verður að fylgjast með þeim á þessu móti, en meðal fyrrum sigurvegara er Spánverjinn Sergio Garcia.