Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í hið árlega sólstöðumót kvenna sem fram fer á Leirdalsvelli á föstudagskvöld. Mótið er punktamót og verður ræst út af öllum teigum kl. 18:45. Mæting er kl: 18:00
Leikið verður í tveimur flokkum: konur undir 24 og konur 24,1 – 40. Hámarks vallarforgjöf er 40.
Verð er kr. 4.500 og er innifalið súpa, salat og brauð að leik loknum.
Glæsileg verðlaun verða fyrir fyrstu 4 sætin í hvorum flokki. Þar á meðal gisting fyrir 2 á EDDU Hóteli með morgunverði. Hádegisverður fyrir 2 á Hótel Holt. Kvöldverðarhlaðborð fyrir 2 í Lóninu Hótel Loftleiðum. Golfkennsla hjá Úlfari Jónssyni, golfpokar frá Holi in One.
* Leikmenn verða að hafa gilda forgjöf til að geta unnið til verðlauna.
Nándarverðlaun á 2, 11, 13, og 17. holu
Dregið verður úr skorkortum í mótslok og verða keppendur að vera á staðnum til að geta hlotið þau.
Verðlaunafhending verður í golfskála í mótslok.
Kveðja, kvennanefnd