Kæru félagar

Eins og fram kom á félagsfundinum þann 8. maí þá hefur verið ákveðið að fresta opnun á Kópavogshlutanum á Leirdalsvelli um eina viku, en félagsmenn þurfa ekki að örvænta vegna þessa því við munum byrja spila á eldri hlutanum þann 10. maí.

Það verður góð upphitun fyrir það sem koma skal því við ætlum svo að opna keppnisvöllinn okkar (Leirdalsvöllinn) með pomp og prakt þann 17. maí með Opna N1 mótinu.

Skráning er hafin á golf.is og hvet ég alla félagsmenn að tryggja sér rástíma í opnunarmóti sumarsins, sjá nánar um mótið með því að smella hér.