Vallarnefnd hefur ákveðið opnun á völlum GKG þetta árið.
Mýrin og gamli hluti Leirdalsvallar opna 1. maí næstkomandi kl 12:00. Kópavogshluti Leirdalsvallar mun síðan opna þann 16. maí næstkomandi, með opnunarmóti Leirdals.
Völlurinn kemur mjög vel undan vetri og því ekkert til fyrirstöðu að golfið veri gott í sumar.
Vinnudagur verður mánudaginn 27. apríl frá klukkan 17:00, en þá verður tekið til hendinni við að hreinsa vellina ásamt ýmsu öðru sem til fellur. Þeir félgasmenn sem mæta á vinnudeginum eiga forgang á rástímum um morguninn 1. maí. Eftir að vinnudegi lýkur verður boðið upp á hressingu í golfskálanum. Við vonumst til að sjá sem flesta félaga því hér gildir lögmálið "Margar hendur vinna létt verk"
Kveðja
Vallarstjóri