Vallarnefnd hefur ákveðið opnun á völlum GKG þetta árið. 

Mýrin og gamli hluti Leirdalsvallar opna 1. maí næstkomandi kl 12:00.  Kópavogshluti Leirdalsvallar mun síðan opna þann 16. maí næstkomandi, með opnunarmóti Leirdals.

Völlurinn kemur mjög vel undan vetri og því ekkert til fyrirstöðu að golfið veri gott í sumar.

 

Vinnudagur verður mánudaginn 27. apríl frá klukkan 17:00, en þá verður tekið til hendinni við að hreinsa vellina ásamt ýmsu öðru sem til fellur.  Þeir félgasmenn sem mæta á vinnudeginum eiga forgang á rástímum um morguninn 1. maí.  Eftir að vinnudegi lýkur verður boðið upp á hressingu í golfskálanum.  Við vonumst til að sjá sem flesta félaga því hér gildir lögmálið "Margar hendur vinna létt verk"

 

Kveðja

Vallarstjóri