Viljum vekja athygli á opnunartímum okkar í æfingaaðstöðu GKG, þ.e. í Kórnum og Íþróttamiðstöðinni. Sjá myndrænt neðar í póstinum.
Íþróttamiðstöðin
Virka daga: húsið opnar 10:00 og lokar kl. 22:00
Æfingar barna/unglinga/afrekshópa eru frá kl 15-19 mán-fim en kl. 14-17 á föstudögum. Ekki er hægt að nota netin eða púttflötina meðan þessar æfingar eru í gangi.
Meðan æfingar eru í gangi þá eru tveir hermar í útleigu til almennra kylfinga.
Um helgar: húsið opnar 9:00 og lokar 22:00.
Við ráðgerum að Kórinn verði nýttur undir skipulagðar æfingar barna- og unglingastarfs, námskeið og almenna kennslu. Íþróttamiðstöðin verði hinsvegar miðstöð félagsmanna til að æfa sig að slá í net, vippa og pútta, endurgjaldslaust. Utanfélagsmenn eru velkomnir en greiða kr. 1.000 fyrir þessa aðstöðu hvert skipti.
Nota þarf sína eigin bolta við æfingar í Íþróttamiðstöðinni. Nota skal hreina æfingaskó (alls ekki gaddaskó) og ganga vel frá áhöldum eftir æfingar.
Kórinn
Húsið opnar um kl. 8:00 og lokar um kl. 22:30
Æfingar barna/unglinga/afrekshópa eru oftast frá kl 15-18 en kl. 14-17 á föstudögum. Námskeið eru frá 18-21 mán-fim. Ekki er hægt að nota netin eða púttflötina meðan þessar æfingar og námskeið eru í gangi.
Kvennatímar verða á þriðjudögum í Kórnum frá kl. 18-21. Kvennanefndin auglýsir fyrirkomulag þeirra æfinga þegar nær dregur.
Birt með fyrirvara um breytingar.
Upplýsingar um Trackman golfhermana er að finna hér, en til að leigja tíma til að æfa og leika á einhverjum af þeim fjölmörgu völlum sem þar eru í boði, þá er hægt að bóka rafrænt hér, eða hringja í golfverslun GKG í síma 565 7373.
Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér okkar frábæru æfinga- og félagsaðstöðu og æfa skipulega í allan vetur og koma þannig vel undirbúnir til leiks næsta vor.