Þriðjudaginn 12. ágúst nk. verður óvissuferð GKG-kvenna.   Skráning fer fram hjá rástímaskráningunni í PRO SHOP eða með því að hringja í rástímaskráningu 565-7378.  Mæting er kl. 9:30 á Vífilsstaðavöll við golfskálann.  Lagt verður af stað kl. 10:00.  Gjaldið er kr. 3.000 og í gjaldinu eru innifalin vallargjöld, rútuferð og súpa og brauð.  Þægilegast er að allar greiði með peningum í rútunni en einnig er unnt að greiða á staðnum með korti.

Leiknar verða 18 holur og verða veitt verðlaun fyrir flesta punkta.  Nándarverðlaun verða á fjórum par 3 holum.  Boltinn verður að vera inn á flöt.  Veitt verða verðlaun fyrir lengsta högg og verður boltinn að vera á braut.  Verðlaunaafhending í mótslok.

ATH: Kvennagolf þriðjudaginn 29. júlí fellur niður vegna vinkvennamóts NK, einngi fellur niður kvennagolfið þirðjudaginn 12. ágúst vegna óvissuferðarinnar.

Golfkveðjur Kvennanefnd GKG