Þriðjudaginn 11. ágúst n.k. verður óvissuferð GKG-kvenna.
Skráning fer fram á töflu í golfskálanum eða með því að hringja í rástímaskráningu 565-7373.
Mæting er kl. 13:00 á Vífilsstaðavöll við golfskálann.  Lagt verður af stað kl. 13:30.
Gjaldið er kr. 3.000 og í gjaldinu eru innifalin vallargjöld, rútuferð og  léttur málsverður, salat og brauð.
Þægilegast er að allar greiði með peningum í rútunni en einnig er unnt að greiða á staðnum með korti.

Leiknar verða 18 holur og verða veitt verðlaun fyrir flesta punkta.
Nándarverðlaun verða á fjórum par 3 holum.  Boltinn verður að vera inn á flöt.
Veitt verða verðlaun fyrir lengsta högg á og verður boltinn að vera á braut.
Verðlaunaafhending í mótslok.

Golfkveðjur Kvennanefnd GKG.