Ágætu félagar
Nú eru pokamerkin og félgsskírteini komin í hús. Við biðjum alla félaga vinsamlegast að nálgast skírteinin á skrifstofu okkar sem allra fyrst. Frá og með föstudeginum 8. mai n.k. verður gerð krafa um að allir félagsmenn sem leika völlin sú komnir með rétt pokamerki fyrir árið 2009. Vallargæslumönnum er uppálagt að fylgjast gaumgæfilega með því hvort rétt merki séu á settum kylfinga. Við bendum á að nauðsynlegt er fyrir kylfinga að vera einnig með félagsskírteinin á sér þegar leikið er en hægt er að krefja kylfinga um það.
Með ósk um gott og gleðilegt golfsumar.
Ólafur E. Ólafsson
Framkvæmdastjóri