Á morgun laugardaginn 13. febrúar fer fram annað púttmótið af sex í mótaröðinni. Mótið fer fram í Kórnum. Púttmótin eru til styrktar afrekskylfingum klúbbsins og gilda fjögur bestu af sex. Þátttökugjald er aðeins kr. 500,- og viljum við hvetja félagsmenn og aðra til að mæta.
Heimilt er að kaupa fleirri en einn hring en aðeins má skila inn einu korti.