Vegna mikillar aðsóknar í Rás2 Open sem fram fer þann 6. júní næstkomandi hefur rástímum verið bætt við. Nú er ræst út frá klukkan 07:30 og fer síðasti ráshópur út klukkan 16:00. Eru nú örfá sæti laus svo hver fer að verða síðastur að skrá sig í þetta stærsta opna mót sumarsins.
Eftir að mótið fyllist er tekið við skráningum á biðlista í síma 897-7773.