Ragnar Már Garðarsson GKG sigraði í lokamóti unglingamótaraðar GSÍ sem fram fór á Garðavelli á Akranesi helgina 22 og 23 ágúst, í flokki 13 – 14 ára stráka.
Ragnar lék hringina tvo á 75 og 69 höggum eða samtals 144 höggum. Seinni dagurinn var leikinn við mjög erfiðar aðstæður og er 69 högg þann daginn því enn glæsilegri árangur.
Ragnar var einnig efstur á stigalista GSÍ yfir 13 – 14 ára stráka en hann hlaut 8.085 stig.
Við óskum Ragnari til hamingju með þennan frábæra árangur.