Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 50 ára og eldri á árinu 2016. Íslandsmót golfklúbba – eldri kylfinga fer fram á Húsatóftavelli í Grindavík 12. – 14. ágúst.

Það er hægt að taka þátt í 7 mótum og ræður röð kylfinga fjölda stiga sem þeir fá fyrir hvert mót. Leikið er af gulum teigum. Meðalskor í meistaramóti GKG gildir tvöfalt. Fimmtudagsmót vegna vals sveitar GKG fer þannig fram að menn skrá sig í rástíma og skila síðan undirrituðu skorkorti í afgreiðslu og GÁ sér um að reikna stig. Ekkert þátttökugjald er í þessi mót.

Gefin eru stig eins og notuð voru við val á landsliðum LEK, höggleikur án forgjafar. 1. sæti fær 330 stig, 2. sæti fær 265 stig, 3. fær 230 stig, 4. fær 210, 5. fær 190, 6. fær 175, 7. fær 155, 8. fær 140, 9. fær 125, 10. fær 115, 11. fær 110, 12. fær 100, 13. fær 95, 14. fær 90, 15. fær 85 og 16. fær 80.

1. 19.5. Fimmtudagsmót vegna vals sveitar GKG
2. 28.5. Opna Pingmótið á Hvaleyrarvelli
3. 9.6. Fimmtudagsmót vegna vals sveitar GKG
4. 18.6. Öldungamótaröðin á Kiðjabergsvelli
5. 30.6. Fimmtudagsmót vegna vals sveitar GKG
6. 3.7. Meistaramót GKG, meðalskor
7. 3.7. Meistaramót GKG, meðalskor

Af 7 hringjum telja 4 sem flest stig gefa hjá hverjum kylfingi.

Þeir 5 kylfingar sem flest stig fá verða í sveitinni og auk þess hefur liðsstjóri frjálst val um tvo til þrjá.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Árnason, S: 697-9467, netfang gunnsol@hive.is

Mynd með fréttinni sýnir sveit GKG sem sigraði í 2. deild eldri kylfinga 2015.