Sex ungir afrekskylfingar úr GKG luku keppni á laugardaginn í German Junior Golf Tour Tour Championship á Berliner Golfclub Stolper Heide vellinum í Þýskalandi.

Sigurður Arnar Garðarsson náði besta árangrinum en hann hafnaði í þriðja sæti. Hann leiddi mótið eftir tvo hringi en slæmur þriðji hringur kom í veg fyrir sigur að þessu sinni.

Þetta var lokamót á German Junior Golf Tour og því margir sterkir unglingar mættir til leiks á góðum keppnisvelli í Berlín. Frábær reynsla fyrir okkar ungu efnilegu kylfinga.

Hér er árangur kylfinganna, en einnig er hægt að skoða úrslitin hér

Sæti   1. hringur 2. hringur 3. hringur 4. hringur Samtals
3 Sigurður Arnar Garðarsson 71 73 83 75 302
5 Viktor Snær Ívarsson 78 74 76 76 304
20 Dagur Fannar Ólafsson 81 80 79 77 317
31 Jóhannes Sturluson 75 78 84 84 321
35 Breki Gunnarsson Arndal 82 77 85 81 325
52 Róbert Leó Arnórsson 81 91 81 80 333

Arnar Már Ólafsson afreksþjálfari GKG var með í för á sínum gömlu heimaslóðum.

Viktor Snær

Sigurður Arnar

Dagur Fannar

Breki

Jóhannes

Róbert Leó