Sex ungir afrekskylfingar úr GKG luku keppni á laugardaginn í German Junior Golf Tour Tour Championship á Berliner Golfclub Stolper Heide vellinum í Þýskalandi.
Sigurður Arnar Garðarsson náði besta árangrinum en hann hafnaði í þriðja sæti. Hann leiddi mótið eftir tvo hringi en slæmur þriðji hringur kom í veg fyrir sigur að þessu sinni.
Þetta var lokamót á German Junior Golf Tour og því margir sterkir unglingar mættir til leiks á góðum keppnisvelli í Berlín. Frábær reynsla fyrir okkar ungu efnilegu kylfinga.
Hér er árangur kylfinganna, en einnig er hægt að skoða úrslitin hér:
Sæti | 1. hringur | 2. hringur | 3. hringur | 4. hringur | Samtals | |
3 | Sigurður Arnar Garðarsson | 71 | 73 | 83 | 75 | 302 |
5 | Viktor Snær Ívarsson | 78 | 74 | 76 | 76 | 304 |
20 | Dagur Fannar Ólafsson | 81 | 80 | 79 | 77 | 317 |
31 | Jóhannes Sturluson | 75 | 78 | 84 | 84 | 321 |
35 | Breki Gunnarsson Arndal | 82 | 77 | 85 | 81 | 325 |
52 | Róbert Leó Arnórsson | 81 | 91 | 81 | 80 | 333 |
Arnar Már Ólafsson afreksþjálfari GKG var með í för á sínum gömlu heimaslóðum.