Sex keppendur frá GKG kepptu á German Tour Championship mótinu sem lauk um helgina. Mótið fór fram á Berliner GC Stolper Heide West Course og var lokamótið á þýsku unglingamótaröðinni.

Það voru þær Elísabet Ólafsdóttir sem keppti í flokki 15 ára og yngri, Gunnhildur Hekla Gunnarsdóttir, Karen Lind Stefánsdóttir og Katrín Hörn Daníelsdóttir sem kepptu í 19 ára og yngri flokki stúlkna. 

Í drengjaflokkum kepptu Benjamin Snær Valgarðsson í flokki 13 ára og yngri og Gunnar Þór Heimisson í flokki 15 ára og yngri. Arnar Már Ólafsson afreksþjálfari GKG var keppendum til halds og trausts.

Mótið var frábær reynsla fyrir krakkana og náðu Elísabet og Benjamín á verðlaunapall í sínum flokkum. Til hamingju Elísabet og Benjamín!

Nánari upplýsingar um mótið er að finna hér. Myndir hér fyrir neðan.

 

Frá vinstri: Elísabet, Katrín Hörn, Karen Lind og Gunnhildur

Krakkarnir kynntust Berlín. Brandenborgarhliðið í baksýn.

Frá vinstri: Arnar þjálfari, Karen, Elísabet, Katrín, Gunnhildur, Gunnar og Benjamín