Um síðastliðna helgi fór fram 3. stigamótið á Kaupþingsmótaröðinni þetta árið á Garðavelli á Akranesi. Allir bestu kylfingar landsins mættu til leiks og að sjálfsögðu voru margir kylfingar frá GKG í þeim hópi. Bestum árangri okkar kylfinga náðu þeir Sigmundur Einar Másson, í 3.-4. sæti á 151 höggi og Alfreð Brynjar Kristinsson, í 6.-7. sæti á 152 höggum. Mega þeir vera ánægðir með sinn hlut.

 

Aðrir kylfingar náðu sér ekki eins vel á strik, en þó má nefna að Guðjón Ingi Kristjánsson átti þokkalega helgi sem skilaði honum 16.-18. sæti. Ingunn Gunnarsdóttir sem sigraði á fyrsta mótinu á Hellu var ekki með að þessu sinni, en bestum árangri GKG-kvenna náði Hansína Þorkelsdóttir sem endaði í 15.-16. sæti í kvennaflokki.