Sigmundur Einar Másson og Eygló Myrra Óskarsdóttir báru höfuð og herðar yfir aðra kylfinga úr GKG á síðastliðnu meistaramóti og urðu klúbbmeistarar karla og kvennaflokki, Sigmundur í þriðja árið í röð og Eygló í annað árið í röð. Þau spiluðu bæði einstaklega gott golf og var sigurinn aldrei í hættu, en Sigmundur vann með 18 högga mun og Eygló átti tólf högg á næsta kylfing í sínum flokki. Frábær árangur hjá þeim. Öll úrlsit mótsins er að finna á síðu mótsins á www.golf.is , undir mótaskrá.

 

Meistaramótið fór annars vel fram í ár og var þátttakan ágæt. Ekki þarf að hafa mörg orð um veðrið, en það var einfaldlega frábært og hefur ekki haldist svona gott veður allt meistaramótið lengi. Mótanefnd og starfsfólk GKG þakkar fyrir sig og vonast til að sjá miklu fleiri að ári.