Í morgun hófst 1. dagur Símamótsins sem er 5. mót sumarsins í Eimskipamótaröðinni. Aðstæður eru nokkuð erfiðar, suðaustan 10 m/s og gengur á með skúrum eða súld. Birgir Leifur fór út fyrstur manna í morgun og kom í hús á fimm yfir pari en heilladísirnar voru ekki með honum í dag. Meðal annars týndist hjá honum bolti á 18. og fékk hann skramba á þá holu.
Þegar þetta er skrifað er Guðjón Henning Hilmarsson kominn á 13. holu og er einn undir og í öðru sæti. Alfreð Brynjar Kristinsson er einn yfir eftir níu. Kjartan Dór Kjartansson er á tveimur yfir pari eftir 12. Emil Þór Ragnarsson er á þremur yfir eftir 12. Ragnar Már Garðarsson er á fjórum yfir eftir og Sigmundur Einar Másson er á fjórum yfir eftir 12.
Við vekjum athygli á því að á meðan mótinu stendur er 50% afsláttur af vallargjöldum GKG meðlima hjá öðrum klúbbum. Þá munum við opna fyrir rástímaskráningu frá 14:00 á meðan mótinu stendur þar sem eingöngu fjöldi þátttakenda er eingöngu 60.
Sjá má myndir frá fyrsta degi hér.
Fylgjast má með stöðu mála með að smella hér.