Íslandsmeistarinn okkar hann Sigmundur Einar Másson náði sér ekki á strik í dag á seinni hring á opna breska áhugamannamótinu, kom inn á 77 höggum eða 6 yfir pari. Hann lék á Royal Lytham vellinum í dag og fann sig greinilega ekki eins vel þar og á St. Annes vellinum í gær, þar sem hann lék á tveimur höggum undir pari.
Sigmundur er sem stendur í 127.-143. sæti og nær því miður ekki niðurskurðinum í þetta skiptið.