Nú fyrir skömmu lauk leik á fyrsta mótinu á KB Bankamótaröðinni, Ostamótinu á Akranesi. Sigmundur Einar Másson  úr GKG hafnaði í 2.-3. sæti. sem var besti árangur okkar manna. Ottó Sigurðsson hafnaði í 4.-5. sæti með góðum hring í dag en aðstæður voru heldur erfiðari í dag en í gær. Magnús Lárusson kylfingur í GKJ sigraði þetta fyrsta stigamót ársins en hann endaði mótið þremur höggum undir pari.

Athygli vakti hve margir keppendur voru úr GKG að þessu sinni og sýnir það glögglega hversu marga góða kylfinga GKG hefur í sínum röðum. Við óskum GKG-ingum til hamingju með árangurinn í mótinu og fylgjumst með hér á gkg.is með næstu mótum.

Lokastaðan á Ostamótinu