Meistaramót GKG heldur áfram í blíðskaparveðri og sýndu margir kylfingar sínar bestu hliðar í dag og komu inn á góðu skori. Í meistaraflokki karla jók klúbbmeistarinn Sigmundur Einar Másson við forystu sína, spilaði á 69 höggum og leiðir mótið með sex höggum.  Sama er upp á teningnum hjá meistaraflokki kvenna, þar leiðir klúbbmeistarinn Eygló Myrra Óskarsdóttir með sex höggum.

 

Rástímar fyrir morgundaginn eru tilbúnir og hægt að nálgast þá á síðu mótsins á golf.is, undir mótaskrá. Af gefnu tilefni má vekja athygli á því að hringurinn á morgun er skráður sem hringur sex, 13. júlí 2007.