Einhvern tímann frá lokun fimmtudaginn 13. ágúst fram til morguns 14. ágúst skemmdist 8. flötin á Leirdalsvelli vegna umgangs hesta. Einn eða fleiri hestar hafa farið yfir flötina og skilið eftir djúp hófför.
Gert verður við þessar skemmdir í dag og eru kylfingar beðnir velvirðingar raskinu sem því fylgir.
Þetta er mjög alvarlegt mál og sýnir að ræða þarf við Kópavogsbæ um lausn á því að girða völlinn þannig að hann sé varinn fyrir svona skemmdum.