Kæru félagsmenn
Við ætlum að klára árið með stæl og halda skemmtilegt innanfélagsmót í Trackman golfhermunum á gamlársdag.
Helstu upplýsingar:
- Leiknar verða 9 holur, þ.e. holur 10-18 á Pebble Beach, þrír í holli.
- Leiktími er hámark 1 klst og 20 mínútur. Ef ekki næst að klára 9 holur á þeim tíma, þá gildir punktafjöldinn þegar leikur er stöðvaður.
- Karlar leika á “amateur” teigum (3058 m), konur á fremstu teigum “ladies” (2489 m)
- Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni með grunnforgjöf leikmanns, hámark 36.
- Hægt er að velja um (meðan pláss leyfir) um eftirfarandi rástíma: Kl. 9:00; kl. 10:30; kl. 12:00.
- Mótinu lýkur því kl. 13:30 og verður verðlaunaafhending í kjölfarið.
- Mótsgjald er kr. 3.900. Innifalið í verði er golfið og veitingar hjá Vigni vert (val um ostborgari og franskar eða beikon og egg)
- Hámarks fjöldi þátttakenda er 36 keppendur (fyrstir koma fyrstir fá og miðast það við greiðslu þátttökugjaldsins).
- Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni með forgjöf.
- 1. sæti: Kennsla í Trackman 30 mín m. PGA kennara og gjafaaskja frá ÍSAM
- 2. sæti: 2×30 mín í Trackman golfhermi og gjafaaskja frá ÍSAM
- 3. sæti: 1×30 mín í Trackman golfhermi og gjafaaskja frá ÍSAM
- Dregið verður úr skorkortum þeirra sem viðstaddir eru verðlaunaafhendingu.
- Ef tveir eða fleiri eru jafnir í verðlaunasæti er varpað hlutkesti.
Skráning fer fram hjá verslunarstjóra GKG, Sindra Snæ Skarphéðinssyni, sindri@gkg.is eða í golfverslun GKG í síma 570 7373. Athugið að staðfesting þátttöku miðast við greiðslu þátttökugjaldsins á reikning GKG sem er 318-26-176, 650394-2089.
