Skráning á sumaræfingar barna og unglinga, sem eru félagar í GKG, er hafin og má sjá æfingatöfluna með því að smella hér. Þessi tafla gildir frá 14. júní – 20. ágúst. Vonandi henta tímasetningarnar sem flestum. Æfingar verða þrisvar í viku, þ.e. 2×1 klst og 1×2 klst spilæfing. 

Skráning fer fram með því að smella hér og fylla út umsóknarformið.  Skráningum lýkur 6. júní. 

Skráningargjald fyrir sumaræfingarnar er kr. 10.000 og gildir það fyrir æfingar til 17. september, en ný æfingatafla tekur við 23. ágúst þegar skólar hefjast.  Gott er að skrifa í athugasemdadálkinn ef óskað er eftir að fara í sérstakan hóp innan aldursflokksins eða ef vinir/vinkonur vilja æfa saman. Ef þátttakandi er með forgjöf vinsamlegast setjið rétta forgjöf í þann reit.

Bestu kveðjur,
Úlfar Jónsson, Íþróttastjóri GKG