Skráning á nýliðanámskeið GKG er hafin, en þessi námskeið eru ætluð nýjum félögum sem eru að stíga fyrstu skrefin í golfinu og hafa ekki fengið forgjöf. Nýjir félagar sem koma úr öðrum klúbbum og hafa fengið forgjöf eða áður tekið þátt á nýliðanámskeiði á vegum golfklúbbs, þurfa ekki að taka námskeiðið. Gjald per þátttakanda er kr. 6.000 og er innifalið í því tæknikennsla, spilkennsla og reglufræðsla samkvæmt neðangreindu skipulagi, auk námskeiðsgagna. Auk þessa fá þátttakendur fræðslu um almenna starfsemi GKG og golfvelli félagsins, og notkun golf.is vegna skráningu rástíma og utanumhalds um forgjöf.

Eftirfarandi tafla sýnir tímasetningar sem eru í boði, hámarksfjöldi á hverju námskeiði 16 manns. Skráning fer fram með því að smella hér.

Kennarar GKG sjá um námskeiðin. Kjartan Bjarnason, R&A alþjóðadómari, sér um regluhluta námskeiðsins.

[SCM]actwin,0,0,0,0;ScreenshotCaptor 24.3.2014 , 11:59:22

 

 

 

 

 

Frekari upplýsingar veitir undirritaður.

Með bestu kveðjum,

Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
S: 862 9204