Hákon Sigurðsson fyrrverandi framkvæmdastjóri okkar GKG-inga lést á líknadeild Landakotsspítala fimmtudaginn 24. apríl, sumardaginn fyrsta.
Hákon var einn af frumkvöðlum og stofnfélagi GKG 24. mars 1994 en klúbburinn varð til við sameiningu Golfklúbbs Kópavogs og Golfklúbbs Garðabæjar. Árið 1993 var staðan þannig að Golfklúbbur Garðabæjar var búinn að fá Jan Sederholm til að teikna 18 holu golfvöll sem ekki tókst að fjármagna og Golfklúbbur Kópavogs hafði sóst eftir landi í Fossvogsdal sem ekki gekk eftir. Hákon var hvatamaður þess að sameina klúbbana og leysa með þeim hætti vandamál þeirra beggja. Hann hafði tekið við framkvæmdastjórastöðu Golfklúbbs Garðabæjar haustið 1993 og varð svo fyrsti framkvæmdastjóri GKG við sameiningu klúbbanna. Hákon gegndi því starfi til 2004 eða í 11 ár og stýrði því uppbyggingu neðri hluta Leirdalsvallar og Mýrarinnar.
Hákon hélt áfram að vinna að málefnum GKG eftir að hann hætti sem framkvæmdastjóri. Vann hann m.a. við vallargæslu og tók að sér verslunarstjórn í verslun GKG í nokkur ár.
Hákon hafði átt við veikinda að stríða síðustu árin en notaði engu að síður hvert tækifæri til að spila íþróttina sem hann átti svo mikinn þátt í að byggja upp. Hann mætti glaðbeittur á golfbílnum sínum, alltaf jákvæður og til í að smella í skemmtilega sögu. Þannig minnumst við þessa merka einstaklings sem átti svo mikinn þátt í að móta GKG að því sem GKG er í dag.
Hákon verður jarðsunginn í Vídalínskirkju kl. 13:00 næstkomandi föstudag.
Elsku Katrín Hlíf og fjölskylda, við hjá GKG sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Stafsfólk GKG