Vinkvennamót GKG- og GO-kvenna gekk mjög vel og voru konur ánægðar með að hittast og spila golf. Það var frábær þátttaka og spiluðu tæplega 90 konur hvorn dag í mikilli veðurblíðu.

 

GO-konur báru sigur úr bítum eftir harða keppni. Þegar fyrir lágu upplýsingar um 10 punktahæstu GO-konur hvorn dag og 10 punktahæstu GKG-konur hvorn dag var staðan jöfn. Var þá ákveðið að taka 15 punktahæstu konurnar í hvorum klúbbi og unnu þá GO-konur og fengu afhentan vinkvennaskjöldin.

 

Eftirtaldar konur voru með samanlagða flesta punkta þessa tvo daga:

 

Hólmfríður M. Konráðsdóttir GKG 75 punkta
Guðrún Erna Guðmundsdóttir GO 73 punkta
Sólveig Bjarnþórsdóttir GO 68 punkta

Guðrún Björg Egilsdóttir var með samtals besta skor, 181 högg.

Nándarverðlaun á 8. braut: Sólveig Guðmundsdóttir GO.
Nándarverðlaun á 15. braut: Hrefna Sigurðardóttir GO og Bríet Þorsteinsdóttir GO. Þær fóru báðar holu í höggi.

Frábær myndasería af mótinu er komin inn á www.kylfing.is

 

Kvennanefndirnar þakka golfkonum fyrir frábærar viðtökur og hittumst að ári.

 

Kvennanefndir GKG og GO.