Við hjá GKG leitum að einstaklingum sem áhuga hafa á að vinna í ProShop GKG sumarið 2015. Starfsmenn ProShop GKG eru andlit klúbbsins gagnvart félagsmönnum og þeim gestum sem spila vellina okkar. Viðkomandi þarf því að hafa góða þjónustulund og vera tilbúinn til að gera upplifun þeirra sem sækja okkur heim minnisstæða. Snyrtimennska ásamt lipurðar í mannlegum samskiptum eru því grundvallarskilyrði.
Þeir sem áhuga hafa á framangreindu starfi sendi vinsamlegast umsókn á hakonsig@simnet.is. Við stefnum á að ganga frá ráðningu á næstu 10 dögum.
GKG er annar stærsti golfklúbbur landsins með um 2.000 félagsmenn. Starfsmenn klúbbsins eru 11 yfir vetrartímann en fara upp í 75 þegar mest er á sumrin.
Tilgangur GKG og markmið eru skv lögum hans að glæða og viðhalda áhuga á golfíþróttinni. Auk þess ber klúbbnum að veita íbúum Garðabæjar og Kópavogs á öllum aldri þjónustu og aðstöðu til íþróttaiðkunar og tómstundastarfs. Sérstök áhersla er lögð á íþrótta- og uppeldisstarf með börnum og unglingum til að stuðla að heilbrigðu líferni og félagsþroska.
GKG sé klúbbur allra aldurshópa, skemmtilegur, menningarlegur, félagslegur og gefandi fyrir félagsmenn, með virkt stjórnkerfi sem misbýður ekki vinnuskyldu sjálfboðaliða í stjórnunarstörfum heldur veitir þeim eins og öðrum GKG félögum ánægju af starfi sínu innan klúbbsins. Það er framtíðarsýn GKG að klúbburinn hafi glæsta og áferðarfallega ímynd og að saga hans sé hverju sinni saga sameiginlegra sigra í leik og starfi þeirra félagsmanna sem fylkja sér saman undir merkjum GKG.