Enn bættist í Íslandsmeistarasafn GKG um helgina þegar stúlknasveitin okkar sigraði í flokki 18 ára og yngri í sveitakeppni GSÍ sem fram fór í Leirunni Stelprunar spiluðu hreint frábært golf um helgina, unnu alla leiki sína örugglega og voru klúbbi sínum til mikils sóma. Stelpurnar sigruðu sveit GR í úrslitum 2,5 – 0,5.
Frá vinstri til hægri: Ragnheiður Sigurðardóttir (liðstjóri), Jóhanna Margrét Grétarsdóttir, Erna Valdís Ívarssdóttir, Þórunn Día Óskarsdóttir, Eygló Myrra Óskarsdóttir og Ingunn Gunnarsdóttir