Það styttist í sumarið hjá GKG en flatirnir líta vel út eftir fyrsta slátt. Vallarstarfsmenn hafa staðið í ströngu undanfarna daga við hin ýmsu vor-verk en það er fjölmargt sem þarf að huga að áður en völlurinn er opnaður. Vallarstjóri GKG hefur ekki gefið út hvenær á að hleypa kylfingum inná völlinn en ljóst er að það styttist í þann góða dag.