Sæl og blessuð, viljum minna á að sumaræfingarnar hjá okkur í GKG hefjast á mánudag n.k., 8. júní.

Smelltu hér til að skoða æfingatöfluna og hópaskipan.

Mæting er ávallt við æfingasvæðið hjá skotpöllunum.

Æfingar eru þrisvar í viku, 1x púttæfing, 1x stutta spil (einnig spil á litla velli), 1x sveifluæfing. Að auki er opin spilæfing á föstudögum í Mýrinnni, sú fyrsta föstudaginn 12. júní. Mæting við skálann kl. 09:00, en nánari upplýsingar koma eftir helgi.

Það verður nóg af skemmtilegu um að vera hjá okkur í sumar, m.a. Mix mótaröð fyrir byrjendur, en fyrsta mótið verður 11. júní. Leikið er á gullteigunum í Mýrinni.

Kristals mótaröðin er leikin á Leirdalsvelli og er fyrir þau sem eru farin að lækka forgjöf, en fyrsta mótið hjá þeim er 10. júní.

Varðandi greiðslu þá sendir Guðrún æfingagjaldið í heimabanka. Einnig er hægt að koma við hjá henni milli 8-16 virka daga og ganga frá.

Ef einhver hefur gleymt að skrá sig þá er enn hægt að komast að með því að skrá sig hér.

Bestu kveðjur!

Þjálfarar GKG