Um næstkomandi helgi, frá föstudeginum 8. ágúst til sunnudagsins 10. ágúst verður Sveitakeppni í 1. og 2. deild kvenna haldin á vegum Golfsambands Íslands á Leirdalsvellinum. Af þeim orsökum verður völlurinn lokaður stóran hluta úr þessum dögum. Við viljum því benda félagsmönnum á að Mýrin verður opin alla helgina fyrir venjulegri umferð aukk þess að eins og alltaf þegar GSÍ heldur mót á Vífilsstaðavelli þá fá félagsmenn GKG 50% afslátt af vallargjöldum á öðrum völlum innan GSÍ á meðan mótinu stendur. Athugið að framvísa verður félagsskírteini við greiðslu þessara vallargjalda.
Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.