Sveitakeppni GSÍ í flokki drengja 15 ára og yngri hófst hér á Vífilsstaðavelli í dag í frekar leiðinlegu veðri, en mjög hvasst var og oft var kylfingum hótað rigningu. Fyrsta umferðin er höggleikur þar sem fjórir úr hverri sveit spila og gilda þrjú bestu skorin til niðurröðunar sveitanna í riðla.
Þegar þetta er skrifað styttist óðum í að síðustu sveitir komi í hús og eftir það fer vinna af stað við að raða í riðla og búa til rástímaplan fyrir helgina. Allar þær upplýsingar ættu að koma hingað inn á vefinn um kvöldmatarleytið, svo fylgist með gkg.is á eftir.