Sveitakeppni kvenna í 1. og 2. deild hófst með látum í dag. Guðmundur Friðrik Sigurðsson, formaður mótanefndar GSÍ, setti mótið og var fyrsti leikur GKG-GA. Heimasæturnar unnu þann leik 2-1.

 

Við bendum á að öll úrslit mótsins verða sett inn í dag á heimasíðu GKG á golf.is (Smellið á klúbbar og finnið GKG). Heildarúrslit dagsins verða svo sett þangað og á gkg.is seinna í kvöld. Því bendum við áhugasömum á að skoða golf.is fyrir liðsuppstillingar og nýjustu úrslit.