Ágætu félagar.

Þar sem það virðist ekkert ætla að stytta upp hjá okkur þá neyðumst við til þess að banna golfbíla á Leirdalsvelli í dag og á morgun í það minnsta.

Við höfum ákveðið að leyfa bíla á Mýrina enn sem komið er og eru þeir sem fara um hana beðnir að sýna mikla aðgát í akstri þar sem það er mikil bleyta og völlurinn viðkvæmur. Frekari tilkynningar um golfbíla notkun koma bæði á heimasíðu og facebook síðu GKG.

Við vonum að kylfingar sýni þessu skilning því þetta er gert fyrst og fremast til að verja völlinn okkar þar sem hann er enn viðkvæmur eftir veturinn.

Kveðja
Guðmundur
Vallarstjóri GKG