Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst.

Leikin var útsláttarkeppni án forgjafar.

Þrír ungir kylfingar úr GKG hömpuðu Íslandsmeistaratitlum, þeir Gunnar Þór Heimisson í flokki 13-14 ára, Guðjón Frans Halldórsson í flokki 15-16 ára og Gunnlaugur Árni Sveinsson í flokki 17-18 ára.

Aðrir GKG-ingar sem komust á pall voru:

3. sæti Björn Breki Halldórsson í flokki U12
3. sæti Eva Fanney Matthíasdóttir í flokki 13-14 ára
3. sæti Arnar Heimir Gestsson í flokki 13-14 ára
3. sæti Elísabet Ólafsdóttir í flokki 15-16 ára

Frábær árangur hjá okkar fólki, innilega til hamingju!

Þetta var lokamótið á mótaröð GSÍ og voru stigameistaratitlar afhentir af því tilefni og voru Arnar Daði Svavarsson í flokki 13-14 ára og Gunnlaugur Árni frá GKG krýndir stigameistarar.

Nánar um hvern aldursflokk fyrir sig:

U12 stráka

U12 stelpna

13-14 ára drengja

13-14 ára telpna

15-16 ára drengja

15-16 ára stúlkna

17-18 ára pilta

17-18 ára stúlkna

19-21 árs piltar

Sjá myndir hér frá Íslandsmóti unglinga í holukeppni 2022.

Frá vinstri: Veigar, Guðjón Frans, Markús

Frá vinstri: Dagur Fannar, Gunnlaugur Árni, Jóhann Frank

Frá vinstri: Guðlaugur Þór, Gunnar Þór, Arnar Heimir

 

Gulli stigameistari og Róbert Leó í 3. sæti í flokki 17-18 áraa

Róbert Leó, Gulli stigameistari, Jóhann Frank

Í flokki 13-14 ára voru 7 af 10 stigahæstu úr GKG! Arnar Daði stigameistari, Gunnar Þór og Snorri í 2. og 3. sæti.

Snorri, Arnar Daði stigameistari, Gunnar Þór

Staða GKG-inga á stigalista unglingamótaraðar GSÍ:

U12 stráka
3. Björn Breki Halldórsson

13-14 ára drengja
1. Arnar Daði Svavarsson
2. Gunnar Þór Heimisson
3. Snorri Hjaltason

13-14 ára telpna
3. Eva Fanney Matthíasdóttir

15-16 ára drengja
2. sæti Guðjón Frans Halldórsson

17-18 ára pilta
1. Gunnlaugur Árni Sveinsson
3. Róbert Leó Arnórsson 

19-21 árs piltar
3. Hjalti Hlíðberg Jónasson