Ungir GKG kylfingar nýta jólafríið heldur betur vel til að keppa í Flórída enda aðstæður frábærar, eða kannski aðeins of góðar, en 28-32° stiga hiti er um þessar mundir í Flórída.
Sigurður Arnar Garðarsson og systurnar Hulda Clara og Eva María Gestsdætur eru að keppa á Doral Publix mótinu í Miami, en mótinu lýkur í dag. Þetta mót er fyrir stráka og stelpur niður í 7 ára aldur og er stemmningin létt og góð þá hart sé barist. Krakkarnir fengu til að mynda lukkudýr fyrir lokahringinn að gjöf frá mótshöldurum. Mótið fer fram á hinum fræga Trump Doral velli, þar sem WGC Cadillac mótið fer fram á PGA mótaröðinni. Hægt er að skoða stöðuna hér.
Sigurður mun jafnframt keppa á American Junior mótinu 28.-30. des í St. Augustine.
Hlynur Bergsson keppir í tveimur mótum á næstunni, í Doral Publix mótinu (16-18 ára) 20.-23. des, og síðan hinu virta Junior Orange Bowl móti 26.-28. des.
Ragnar Már Garðarsson keppir á South Beach International mótinu 20.-23. des í Miami. Þetta mót er með sterkari áhugamannamótum í heiminum.
Loks keppir Elísabet Ágústsdóttir keppir á Hurricane Junior Tour mótinu sem fer fram á Orange County National vellinum í Orlando 26.-28. des.
Við óskum þeim öllum góðs gengis í mótunum.
Áfram GKG!