Púttmóti nr. 7 í  mótaröð barna og unglinga lauk á laugardag í Kórnum. Þátttaka var sem fyrr mjög góð, en alls mættu 50 krakkar.

Úrslit allra keppenda er hægt að sjá með því að smella hér.

Minnum á næsta mót sem verður laugardaginn 26. mars og verður hægt að spila milli 10-12 í Kórnum. Ókeypis er í þessi mót og gildir heildarárangur úr 6 bestu mótunum af 10 til verðlauna.

Mótið sem átti að vera 9. apríl fellur niður þar sem afrekshópurinn og Hlynur þjálfari verða í æfingaferð til 17. apríl. Þess í stað verður mót 30. apríl (og einnig 23. apríl eins og áður auglýst).