Fimmta mótinu lauk í dag í púttmótaröð barna og unglinga GKG, en mótin eru leikin annan hvern laugardag. Að þessu sinni tóku 28 krakkar þátt. Alls verða 9 mót í vetur, og telja bestu 4 mótin í heildarkeppninni, en veitt verða einnig verðlaun fyrir bestu mætinguna. Hægt er að sjá árangur efstu í hverjum flokki hér fyrir neðan, en til að sjá úrslit allra keppenda smellið hér. Ef þið sjáið einhverjar rangfærslur þá sendið póst á ulfar@gkg.is

Athugið að næsta mót verður núna á næsta laugardag, 12. mars. Hægt er að hefja leik milli 11-12:45 og er þátttaka ávallt ókeypis. Það er líka sjálfsagt að bjóða vini/vinkonu með og prófa að taka pútthring.

12 ára og yngri stelpur 04 og síðar 5.mar
Bjarney Ósk 33
Ragna Björk 35
Elísabet Sunna Scheving 38

12 ára og yngri strákar 04 og síðar 5.mar
Róbert Leó 28
Óliver Elís 30
Jósef 31
Jóhannes Sturluson 31
Ísak Þór 31

13-16 ára stelpur 03-00 5.mar
Alma Rún 30
Hulda Clara 30
María Björk 30
Herdís Lilja 30

13-16 ára strákar 03-00 5.mar
Óliver Máni Scheving 29
Jón Þór 29
Viktor Snær 30
Magnús Friðrik 30