Fjórða mótinu lauk í dag í púttmótaröð barna og unglinga GKG, en mótin eru leikin annan hvern laugardag. Þátttakan var mjög flott, en 38 krakkar tóku þátt. Alls verða 9 mót í vetur, og telja bestu 4 mótin í heildarkeppninni, en veitt verða einnig verðlaun fyrir bestu mætinguna. Hægt er að sjá árangur þriggja bestu í hverjum flokki hér fyrir neðan, en til að sjá úrslit allra keppenda smellið hér. Ef þið sjáið einhverjar rangfærslur þá sendið póst á ulfar@gkg.is
Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og minnum á næsta mót sem fer fram laugardaginn 5. mars í Kórnum. Hægt er að hefja leik milli 11-12:45 og er þátttaka ávallt ókeypis. Það er líka sjálfsagt að bjóða vini/vinkonu með og prófa að taka pútthring.
12 ára og yngri stelpur 04 og síðar 20.feb
Bjarney Ósk 32
Sigríður Embla 36
Ragna Björk 39
12 ára og yngri strákar 04 og síðar 20.feb
Róbert Leó 29
Sigurður Nonni 29
Jósef 30
13-16 ára stelpur 03-00 20.feb
Alma Rún 28
Hulda Clara 29
María Björk 29
13-16 ára strákar 03-00 20.feb
Sigurður Arnar 27
Breki 29
Rafnar 29