Hjóna- og para keppni GKG fór fram laugardaginn 21. maí síðastliðinn. 140 einstaklingar tóku þátt í mótinu eða 70 pör. Mótanefnd stóð vaktina að vanda og passaði upp á það að allir fengju eitthvað heitt í kroppinn út á velli því þrátt fyrir fallegt veður, þá vantaði smá upp á hitastigið.

Spilaður var betri bolti og voru úrslitin eftirfarandi:

  1. Sæti – Óðinn Gunnarsson og Stefanía Baldursdóttir
  2. Sæti – Örn Jónsson og Hólmfríður Hilmarsdóttir
  3. Sæti – Jóhanna Sigmundsdóttir og Pétur Ingi Hilmarsson

Um kvöldið var svo haldið glæsilegt lokahóf þar sem Mulligan reiddi fram glæsilegar kræsingar og verðlaunaafhending fór fram. Að aflokinni formlegri dagskrá mætti Ingó Veðurguð og setti punkt yfir i-ið á þessum frábæra degi.