Um helgina lauk móti nr. 3 í púttmótaröð barna og unglinga GKG. Mótaröðin er opin öllum 18 ára og yngri sem eru í GKG. Í heildina verða 10 mót og gilda 6 bestu skorin. Á laugardaginn kepptu yfir 50 krakkar og gaman að sjá hversu mikill áhugi er hjá krökkunum. Hlynur Þór Haraldsson, þjálfari GKG, sér um mótin.
Næsta mót fer fram laugardaginn 22. janúar kl 10-12 í Kórnum.
Úrslit eftir þrjá hringi er hægt að sjá með því að smella hér.