Hinu árlega Niðjamóti lauk í gær en það er hefð fyrir því að mótið sé undanfari Meistaramótsins okkar. Mótið var hefur verið haldið óslitið síðan 2005 (utan 2011). Sem fyrr var mótið var hið glæsilegasta og fór ágóðinn af mótinu í barna- og unglingastarf GKG. Sigurvegarar mótsins þetta árið voru feðginin Ólafur Jónsson og Anna Júlía Ólafsdóttir en þau léku á 45 punktum. Veitt voru verðlaun fyrir sex efstu sætin auk fjölda aukaverðlauna og útdráttarverðlauna. 

Mótið er ávallt einstaklega skemmtilegt og enda fáar íþróttir sem gefa jafn góða möguleika á að tengja kynslóðirnar saman og golfið.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hægt er skoða úrslit mótsins hér.

Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með greensome fyrirkomulagi, sem felur í sér að báðir slá af teig og skiptast síðan á, þannig að sá sem ekki á upphafshögg slær annað högg og síðan til skiptis þar til bolti liggur í holu eða punktar eru búnir. Lið voru þannig skipuð að annar liðsmaður var afkomandi hins eða tengdabarn. Mótsstjórn getur samþykkt annars konar fjölskyldutengsl. Forgjöf liðs var 40% af leikforgjöf þess sem hærri hafði forgjöfina og 60% af forgjöf þess sem lægri hafði hana.

GKG þakkar þátttakendum fyrir stuðninginn við barna- og unglingastarfið, sem og fyrirtækjunum Icelandair, Air Iceland Connect og Icelandair hotels, FlyOver Iceland, Joe Boxer, Zo On, Vigni vert í Mulligan sem gaf súpu og brauð og kennurum GKG sem gáfu verðlaun. Ekki síst þökkum við Hilmari Halldórssyni og Elísabetu Halldórsdóttur og Gunnari Jónssyni sem unnið hafa mjög óeigingjarnt starf í kringum mótið frá upphafi.