Í kvöld lauk Opna Ecco minningarmóti GKG og léku 156 kylfingar í blíðskaparveðri á Leirdalsvellinum sem var í toppstandi. Við þökkum kærlega öllum keppendum fyrir þátttökuna og stuðninginn við barna-, unglinga- og afreksstarf GKG.
Verðlaunasæti urðu eftirfarandi, en verðlaunahafar geta nálgast sín verðlaun eftir helgi á skrifstofu GKG, sjá verðlaunalista fyrir neðan.
Punktakeppni með forgjöf – kvennaflokkur
- Helga Björnsdóttir GO 46 punktar
- Freyja Sveinsdóttir GHR 42 punktar
- Dóra Ingólfsdóttir GHR 40 punktar
Punktakeppni með forgjöf – karlaflokkur
- Kristján Jónsson GK 44 punktar
- Nils Gústavsson GKG 43 punktar
- Kristján Hjálmar Ragnarsson GKG 39 punktar
Höggleikur án forgjafar – konur
- Ingunn Gunnarsdóttir GKG 87 högg
Höggleikur án forgjafar – karlar
- Úlfar Jónsson GKG 68 högg
Nándarverðlaun veitt á öllum par 3 holum vallarins.
2. hola: Gestur Gunnarsson GKG 180 sm
4. hola: Úlfar Jónsson GKG 134 sm
9. hola: Jón Arnar Sigurðarson GKG 94 sm
11. hola: Ingunn Gunnarsdóttir GKG 63 sm
13. hola: Fannar Guðmundsson GM 392 sm
17. hola: Dagur Þórhallsson GKG 126 sm
Iss, ég para bara næstu verðlaunin (Keppendur sem leika yfir pari á 15. holu og para 16. holuna fóru í pott og var dregið um sigurvegara)
Breki Jóelsson NK
Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með frábæran árangur!
Verðlaunalisti
Punktakeppni með forgjöf.
- sæti Ecco golfskór að verðmæti allt að 30.000,-kr, Gjafabréf fyrir gistingu í tveggja manna herbergi með morgunverði í eina nótt á Íslandshóteli að eigin vali. 10.000,-kr gjafa bréf í Olís
- sæti Skechers golfskór að verðmæti allt að 20.000,- kr, gjafabréf fyrir tvo í Reykjavík Escape og 10.000,-kr gjafabréf í Olís.
- sæti Ecco Kerrupoki og 10.000,-kr gjafabréf í Olís
Höggleikur án forgjafar (veitt er verðlaun fyrir besta skor í báðum flokkum)
- sæti Ecco golfskór að verðmæti allt að 30.000,-kr og 15.000,-kr gjafabréf á Matarkjallaranum
Nándarverðlaun veitt á öllum par 3 holum vallarins.
Gjafabréf í Ecco búðinni að upphæð 15.000,-kr
Vegna Covid-19 þá var engin verðlaunaafhending í skála en verðlaunahafar geta nálgast verðlaunin sín á skrifstofu GKG eftir helgi.
Við viljum sérstaklega þakka stuðningsaðilum barna-, unglinga- og afreksstarfs GKG fyrir þeirra stuðning.
Kærar kveðjur og þakkir.
Íþrótta- og afreksnefnd GKG