Annað púttmót af 9 í mótaröð barna og unglinga í GKG lauk s.l. laugardag, og líkt í fyrsta mótinu tóku 51 keppandi þátt í mótinu. Fimm bestu af níu telja í heildarkeppninni. Veitt verða verðlaun í lok mótaraðarinnar fyrir 3 bestu skor í hverjum flokki.Næsta mót verður laugardaginn 4. febrúar, en hægt verður að pútta milli kl. 10-12 í Kórnum.
Bestum árangri á laugardaginn náðu eftirfarandi kylfingar:
12 ára og yngri stelpur 21.jan
Hulda Clara Gestdóttir 29
12 ára og yngri strákar 21.jan
Magnús Friðrik Helgason 25
13 – 15 ára stúlkur 21.jan
Ásthildur Lilja Stefánsdóttir 26
13 – 15 ára strákar 21.jan
Kristófer Orri Þórðarsson 25
Róbert Þrastar 25
16 – 18 ára piltar 21.jan
Emil Þór Ragnarsson 25
16 – 18 ára stúlkur 21.jan
Særós Eva Óskarsdóttir 26
Hægt er að sjá árangur allra keppenda með því að smella hér.
Minnum á að þátttaka er ókeypis og hvetjum við því alla krakka til að koma og taka þátt í skemmtilegu móti og fá góða æfingu í leiðinni.